Á morgun fer ég til Danmerkur að hitta mömmu. Í vetur er ég búin að skreppa til útlanda í hverju einasta skólafríi. Einhvern tímann hefði maður nú kallað það flottræfilshátt (segi ég eins og ég sé fjörgömul og hafi lifað tímana tvenna).
Í gær fékk ég nýjan kjól. Hann er svolítið eins og Vaudeville kjólarnir sem barnastjörnur á Broadway voru í þegar Vaudeville var í tísku. Vaudeville voru eins konar söngleikjasketsj. Mjög stuttir söngleikir.
Uppáhalds myndin mín þegar ég var ung og geðveik var söngvamyndin Gypsy með Bette Midler í aðalhlutverki. Á Laugarásvídjóleigunni var til eitt eintak af myndinni og ég var sú eina sem hafði nokkurn tímann leigt hana, en ég leigði hana alltaf reglulega.
Gypsy fjallar um óþolandi sviðsmömmu sem vill að dætur sínar meiki það sem Vaudeville stjörnur. Yngri dóttirin hefur mikla leikhæfileika og mamman lifir fyrir hana en kann illa við þá eldri. Áætlanir mömmunnar fara alltaf í vaskinn og allir gefast upp á henni. Í lokin slær "hæfileikalausa dóttirin" í gegn sem strippari. (Í myndinni er það alveg álíka saklaust og að vera leikkona, kannski ögn brattara. Það er allavegana enginn Geiri í myndinni og stripparinn endar sjóið yfirleitt á því að taka af sér hanskana. Ég hef séð alvöru strippsjó á Íslandi og eftir á að hyggja var kannski dregin upp ansi saklaus mynd af nektardansi í myndinni).
Annars er mikil tvíræðni í því að lagið sem litla stelpan syngur í byrjun myndarinnar í Vaudeville atriði er það sama og systir hennar syngur fullorðin kona sem strippari. Svona er textinn:
Let me entertain you
Let me make you smile
Let me do a few tricks
Some old and then some new tricks
I'm very versatile
And if you're real good
I'll make ya feel good
I want your spirits to climb!
So let me entertain you
And we'll have a real good time!